|
|
28.12.2007 14:26:50 / Sibba
Sæl krakkar og gleðileg jólin og farsælt komandi ár. Eins og fyrri ár nennti ég ekki að skrifa jólakort... en ég er búin að fá á mig pressu á myndajólakort á næsta ári, sjáum til... 
»
03.12.2007 19:41:59 / Sibba
Allo Allo, það er allt fínt að frétta af mér og mínum. Maginn stækkar og stækkar með tilheyrandi óþægindum. Fólk finnst ég vera orðin ansi stór miðað við að vera BARA komin 6 mánuði, og halda að ég sé bara kominn á tíma. En ég eignast þá bara massað barn! Ég þyrfti að fara að setja inn mynd af magnum eða er það kannski ekki viðeigandi fyrir viðkvæmar sálir. Og desember er byrjaður með tilheyrandi frost og snjó, eins og það á að vera!! Vá hvað ég saknaði snjós, kraps og slyddu í desember í Rvk. Hér er allt til alls, nóg af þessu og ég þyrfti að fara láta kallinn moka tröppurnar svo ég komist slysalaust inn og út Við erum búin að skreyta og erum við mjög hógvær enda ekki mikil jólamanneskja sem þetta skrifar. Við hentum þó saman í ágætis aðventukrans sem var rosa gaman, svei mér þá ef að það sé ekki aðeins meiri jólastemmari þegar maður er að skreyta sitt eigið heimili... Ég ákvað að vera ein jól í viðbót í foreldrahúsum og verð komin suður um 18. des, áramótunum ætla ég svo að eyða með kallinum á Akureyri. Eins löt og ég er venjulega stefni ég að því að hitta alla sem ég þekki í Rvk um þessi jól  En þangað til...
»
29.10.2007 19:56:49 / Sibba
Er alveg eðlilegt í íslensku atvinnulífi í dag að vera á msn í vinnunni? Ég var að velta þessu fyrir mér um daginn þegar ég var í ömurlegu vinnunni minni að hringja í fyrirtæki vegna skoðunnarkönnunar. Þá var hún Tobba við hliðina á mér að spyrja hvar msn-ið væri. Tobba er svona 42 ára og er alveg týpísk Tobba. Mér fannst merkilegt þar sem vinnan okkar gengi út á það að lesa upp það sem stóð á tölvuskjánum að hún vildi vera á msn... Mér fannst það reyndar ósköp þægilegt í skrifstofuvinnu minni þessi 2 ár, og það að sign-a mig inn var það fyrsta sem ég gerði þegar ég kveikti á tölvunni, gott ef það var ekki bara á automatic. Og það að msn-a á Ásu eða Völu hvort það væri ekki komin tími til að kíkja til veðurs þegar þær sátu ekki nema 10-12 skref frá mínu borði fannst mér frábært. Eins í sumar fannst mér gott að geta bara msn 2 setningar á aðra hótelstjóra eða á samstarfskonur mínar á skrifstofunni í staðinn fyrir að þurfa að hringja og enda í e-ju spjalli í 10-15 mín. Msn-ið er orðið rosalega stór hluti af okkar samskiptum í dag og á flestan hátt alveg ótrúlega hentugt og hagkvæmt. En ætli yfirmenn fyrirtækja viti af því að með aðeins einu músarklikki geta óbreyttir starfsmenn haft samskipti við vini sína án þess að hann komist nokkurn tímann að því. Hvað segið þið, er msn orðið eðlilegur hluti af vinnuumhverfinu í dag eða er það bara ein önnur afsökunin til þess að þurfa ekki að vinna?
»
16.10.2007 21:39:08 / Sibba
Ég... lokaði Fosshótel Laugum 26. ágúst... meikaði ekki að fara í skólann og svaf í 2 vikur... fór suður í brúðkaup og horfði á helstu tónlistarmennina í dag spila og kjammsaði á hrárri nautalund, Í svörtum fötum lokaði svo kvöldinu... fór til New York með Jón Inga í viku, ég verslaði, fór í matarboð til Josephine vinkonu í Brooklyn, fór í dagsferð til Niagara falls, var árétt kynferðislega með kálfakáfi í subway-num, sá skrúðgöngu þjóðverjafélagsisn í NY og daginn eftir sá ég Mexicana þramma niður göturnar og sá það merkasta og flottasta... kom heim og uppgvötaði hvað það er að vera atvinnulaus í fyrsta skiptið frá 14 ára aldri... fékk vinnu og byrjaði í dag sem spyrill í fyrirtækjakönnunum... já og svo er í ólétt, er komin 20 vikur þannig að þessa geimvera hefur væntanlega laumað sér inn, í sveitarómantíkinni á Laugum í sumar. Fann sem betur fer lítið fyrir óéttunni í sumar, nema þá í síþreytu og hafði þangaði til í síðustu viku aðeins tekið eftir stækkandi brjóstum og maga, en þá fann ég nefnilega hreyfingar. Nema þá að þetta sé bara gas... en ég fæ úr því skorið á fimmtudaginn, en þá fer ég í sónar og fæ vonandi að vita hvors kyns geimveran er, glætan að ég hafi þolinmæðina til að bíða 4 og 1/2 mánuð í viðbót.
»
19.08.2007 15:34:26 / Sibba
Eitt af því sem ég geri í móttökunni hér á Laugum er að selja
miða í hvalaskoðun. Ætíð spyrja þessir vesældar útlendignar hvenær
sé best að fara upp á að sjá hval, morgnana, kvöldin, um
kaffitímann... og hvort að þeir komi frekar upp að leika sér þegar
það er rigning eða þegar það er sól. Í hvert sinn stend ég á gati,
segi að Skjálfandinn sé nú ekki dýragarður og það sé bara happ og
glapp að sjá þessa risa undirdjúpanna.
Þannig að ég lét reyna á það í dag að fara í hvalaskoðun svo ég
geti sagt frá eigin reynslu næst þegar ég þarf að upplýsa
útlendingana. Við fórum þrjár héðan frá Laugum kl 9 í morgun í
blíðskaparveðri, það var ekki gára á sjónum og varla
mælanlega gola og glampandi sól. Að sjálfsögðu stilltum við
okkur í stefnið á duggunni til að geta séð sem best. Ég fór náttla
bara í hettupeysu og sportbuxum út á sjó eins og í gamla
daga þegar ég fór með pabba og nonna frænda á trillunni út í
Þistilfjörðinn, og var ekki að spá í það að þetta er 3 tíma
ferð!!!
Ég var búin að heyra að þetta sumar er alveg óvenju lítið
af hvöldum í Skjálfandu, Hafró búið að gefa út veiðileyfi á allar
skepnurnar, þannig að ég var ekki bjartsýn. Við sáum bara
marglyttur og lunda á leiðinni út Skjálfandann. Ég var bókstaflega
að krókna úr kulda þarna fremst með norðurísskautsvindinn beint í
smettið og var orðin frekar vonlítil og dofin í framan. En eftir um
klukkutíma siglingu þá sáum við e-ð -hughes rétt fyrir ofan
sjávarborðið. Voru þar á ferð tveir 15-17 metra hnúfubakar á
ferð!!! Djöfuls flykki sem þetta voru, en þeir eru svalir þessir
hvalir, þeir blésu hvað þeir gátu áður en þeir köfuðu aftur niður á
ca 200 metra dýpi ( ég lærði þó e-ð í leiðsöguskólanum ). Við
bíðum þarna í 10 mín í viðbót á sama stað, þangað til þeir komu
aftur upp 50 metrum frá bátnum og þá var bara gefið í, í átt að
þeim og voru þeir ekki nema í 5 metra fjarlægð frá bátnum. Þetta
var geðveik sjón, ég gerði mér enga grein fyrir því hvað þetta eru
stór kvikindi.


En þegar þeir köfuðu niður annað sinn þá sagði guidinn: "Nú
þurfum við að fara aftur til Húsavíkur af því að það tekur svo
langan tíma!" Það finnst mér asnalegt. Maður siglir í klukkutíma og
korter út á ballarhaf, sér hvali í 20 mínútur og þarf svo að fara
að snúa við af því að við erum svo langt frá Húsavík. Asnalegt,
eins gott að þetta var frí ferð. Fáið ykkur hraðskeirðari báta svo
að maður geti skoaða hvalina í hvalaskoðun. Þetta var eins
og að vera í rússibana sem fer bara einn hring!!!
En þessir hvalir eru svalir og það er sorglegt að við
íslendingar séum að veiða þá í "tilraunaskyni" fyrir Hafró, það eru
ekki margir hvalir sem halda þessum business gangandi á Íslandi,
alla vega ekki á Húsavík, veit ekki hvernig þetta er í Reykjavík
eða á Suðurnesjunum. Þessir hnúfubakar sem ég rakst á í
dag, hafa verið í Skjálfandanum í 3 daga. Stelpa sem vinnur hjá mér
hefur farið 3svar í hvalaskoðun í sumar og í 2 skiptið sjást ekki
til hvalar og í 3ja skiptið sá hún 2 höfrunga í nokkrar
mínútur.
Þessir hvalir koma upp að ströndum ísland til að matast og
makast á vorin og fara aftur á haustin í suðursjó, ég sé engan
tilgang í því að drepa þá, þeir hafa engin mælanleg áhrif á
fiskistofn okkar Íslendinga.
Ég segi bara eins og formaður verkalýðsfélags Húsavíkur hefur nú
sagt 3svar við mig nú í sumar: Allir í skóginum eiga að vera
vinir.
Afhverju hann sagði þetta svona oft við mig er önnur saga...

»
30.07.2007 12:40:24 / Sibba
Jæja, nú er ég farin að sjá fyrir endann á þessu annasama sumri.
Þetta sumar hefur gjörsamlega farið fram hjá mér. Ég er innilokuð á
skrifstofunni minni allan daginn og er of þreytt til að fara í sund
eða út að labba á kvöldin. Ég legg ekki aftur í svona
sumarvinnu.
En þessi hótelrekstur hefur gengið ótrúlega vel, finnst mér
allavega miðað við mín fyrri störf og reynslu. En það er
bara komin tími til að ég flytji inn í íbúðina mína á Akureyri og
kynnist manninum sem ég keypti hana með.
Ég hef séð það að leiðsögn er e-ð sem ég er ekki að fara að gera
í framtíðinni. Eftir að hafa fylgst með þessum überstrekktu guidum
sem hingað hafa komið, nei, ég ætla að fara í starf þar ég er ekki
vinnan mín. Maður verður að eiga sér e-ð líf og kannski fríhelgi af
og til....
En 24 dagar í lokun og þá get ég kvatt þettann stað 
»
09.07.2007 13:10:53 / Sibba
Ég þarf að fara til læknis og þar sem ég er ekki komin með
heimilslækni hér á Akureyrinni þá fór ég í símaskrána til að velja
e-n af handahófi. Allir læknar á gulusíðunum er flokkaðir niður
eftir sérhæfingu þeirra. En svo rak ég augun í flokk sem heitir
Ýmsir læknar.
Þar eru 5 læknar skráðirog svo Domus Medica, og ég er að velta
því fyrir mér hvurslags læknar þetta eru, geta þeir kannski bara
hjálpað þér með ýmislegt og hitt eða þetta.
Mig langar alla vega ekki að fara til læknis sem sérhæfði sig í
ýmsu...
Annars er stuð hér á Laugum, mikið að gera og ég get ekki gert
upp við mig hvort fari meira í taugarnar á mér, leiðsögumenn eða
starfsfólkið mitt!
»
22.06.2007 12:51:15 / Sibba
Alveg er það greinlegt hvað íslenska ríkið og þau ráðuneyti,
sofur og stofnanir sem þau reka eru alltof mörg.
Í morgun var ég að leita eftir upplýsingum fyrir Ungverskan
starfsmann hjá mér sem þarf að komast til læknis. Þar sem
Ungverjland er ekki í EES þurfti ég upphaflega að skrá hana sem
"Útlending í atvinnuleit", það gerði ég hjá vinnumálastofnun. Ég
vildi sækja um kennitölu fyrir hana hjá Þjóðskrá, en nei, Hagstofan
sér um kennitöluveitngar. Því næst sótti ég um skattkort fyrir
hana, en þar sem plaggið fá vinnumálastofnun hafði ekki borist
ríkisskattstjóra þá þurfti ég að ath eftir viku hvort
að hún gæti fengið skattkort.
Svo þarf pían að hitta lækni, allt gott með það. En ég
viðurkenni þó að ég yrði ansi smeik ef ég væri í Ungverjalandi
og þyrfit að hitta þarlendann lækni, miðað við enskukunnáttu
starfsmanns míns. En þar sem hún er ekki komin með
formlegt "atvinnuskráningu" þurfit ég að finna út hvort hún
þyrfti að borga 40.000 kr í komugjald eða það sama og við hin, 800
kr.
Þannig að ég fór á stúfana, ég hirngdi í Útlendingastofnun(hét
EFTIRLIT þangað til í fyrra), þau vissu ekkert um rétt Ungverja til
heilbrigiðsþjónust, mér var bent á að tala við þjóðskrá. Þjóðskrá
kom af fjöllum og benti mér að tala um Úteldingastofnun. Ég lenti á
sömu stelpunni aftur og hún sagði mér að prófa að tala við
vinnueftirlitið. Vinnueftirlitið sagði mér að tala við
Héraðslækninn í Þíngeyjarsveit. Héraðslæknir í Þingeyjarsveit gaf
mér samband við móttökuritara á Sjúkrahúsinu á Húsavík. Og þar fékk
ég tíma í dag fyrir hana kl 13.30! Glæsilegt !
Eina sem ég er svoldið stressuð fyrir, Ungverjinn talar sama og
enga ensku og ég held að þessa heilsuvandamál sé e-ð
kjallaratengt...
»
19.06.2007 20:08:16 / Sibba
Einu sinni var ég í Tübingen í S-Þýskalandi í
2 vikur með háskólanum. Það var stuð, nema að 2ja vikna
kuldatímabilið var akkúrat á þeim tíma sem ég var þarna...
Herdís og Guðrún vinkona voru svo eina og 2 annir í háskólanum í
Tübingen...
Og núna er ég með bandasírkan kokk sem býr í Tübingen...
Lítlill heimur...
»
05.06.2007 19:10:03 / Sibba
Jæja... þetta blogg mitt er farið að fyrlgja tíðarhringnum bara.
En ég er allavega búin að standa á haus í allskonar útréttingum,
það er ekkert grín að ætla sér að reka hótel með sóma. Ég er búin
að vera á felygiferð milli Húsavíkur-Akureyrar-Reykajvíkur en er nú
loksins sest að á Fosshótel Laugum í Reykajdal. Ég fór sumsé suður
um miðjan maí til að sitja námskeið um hótelstjórnun, og í lok þess
útskrifaðist ég sem Afþreyingarleiðsögumaður Loksins
loksins! En það er nú saga að segja frá útskriftinni minni.
Ég hafði fengið tölvupóst frá áfangastjóra vikunni áður og það
sem ég mundi úr honum var að útskriftin væri hátíðleg, með blóm í
barmi, í kirkju, í Kópavogi kl 16.00. Ég var náttla í bæjarferð að
versla mér útskriftarföt til kl 15.00 þá brunaði ég heim og
sturtaði mig í hvelli. Á útúr dyrunum mundi ég eftir
þessu helvítis blómi í barminn og dreif mig þá í blómabúð og
keypti síðasta barmblómið í búðinni. Það vildi nú
ekki betur til en svo að blómið var þakið e-ju
brúnu drasli, kannski pöddum, sem nuddaðist við svarta kjólinn
minn. Ég ók af stað upp í Kópavogskirkju en mamma
tók þá eftir að fólk streymdi inn
í Digraneskirkju í stríðum straumi, ég var full viss um
að ég ætti að mæta í Kópavogskirkju. Þar parkeraði ég bílnum
og ég mamma og Jón hlupum upp að kirkjunni, þá tók ég eftir að
flaggað var í hálfa... mamma neitaði að kíkja inn í kirkjuna,
hún var viss um að þar væri jarðaför en ég var viss um að þar væri
útskrift. Ég hlustaði þó á mömmu og við brunuðum til baka í
Digraneskikjuna. Á slaginu 4 hljóp ég pungsveitt inn í
kirkjuna og leitaði að sæti mínu í örviljun. Þetta var raðað í
satfrófsröð en ég hafði náttla ekki græna hvar hún
byrjaði... Skólameistari kom þá askvaðandi og spurði mig
hvað ég héti og svo keyrði hún mig niður í sætið mitt og
byrjaði athöfnina. Sem bæ ðe vei var ekki sú skemmtilegasta... En
illu er best af lokið, ég er búin með skólann og á að heita
skemmtileg núna að atvinnu...
Við Jón og Jóka systir keyrðum svo norður á Akureyri á
föstudeginum þar sem við áttum ágætis helgi, þ.á.m. stórgóðu djammi
með "stráknum", en shit hvað ég þarf að eignast vinkonur!!! Og nú
er ég mætt á Laugar og vinn frá 7-11 á kvöldin... mikið stuð.
»
09.05.2007 17:08:41 / Sibba
Ég kaus í dag untan kjörfundar hjá sýslumanninum á
Húsavík. Ég skrifaði undir plagg um að ég væri ég og fór svo
inn í klefa þar sem ég valdi stimpil sem þeim staf sem næst stendur
mínum pólitísku skoðunum og stimplaði fast á brúnana kjörseðilinn.
Ég hefði getað stimplað upp í 20 sinnum þar sem mikið var plássið
en ákvað að gera það ekki, ef seðill minn yrði svo dæmdur
ógildur.
Svo fór ég fram sem nýsleikt umslagið þar sem fulltrúi
sýslumanns setti umslagði sem innihélt stimpil minn í annað umslag
og sleikti vel fyrir. Svo var mér tilkynnt það að ég gæti nú alveg
skotist með það sjálf á pósthúsið þar sem ég væri hvort sem er svo
sein að kjósa. Gerði ég það og ætlaðist ekki til að þurfa að borga
undir þetta merka stimplaða plagg, en annað kom á daginn.
Ég greiddi 60 krónur fyrir atkvæði mitt! Eins gott að það verði
lykilatriðið sem skilji einn/eina eftir kjökrandi heima en greiði
leiðina fyrir hinn/hina inn á þing!
Svo er bara Júró að skella á 
»
20.04.2007 11:22:53 / Sibba
Ég fór til Reykjavíkur á miðvikudaginn, kveikti í sjoppu niðrí
bæ og fór svo heim um kvöldið...
Það var stuð...
»
13.04.2007 10:54:08 / Sibba
Nú erum við búin að koma okkur ágætlega fyrir á Skólastígnum,
fyrir utan nokkrar gardínur og myndir á veggina. Páskarnir voru
æðislegir, fengum fullt af fólki í heimsókn, þ.á.m. pabba minn sem
var strax settur í að hefla, skrúfa og tengja. Mamma kom líka og
fór með mér í gegnum í búðina á fagurfræðilegan hátt. Rán og Orri
litli voru líka með. Rósa mín elsku aprikósa mætti svo á
fimmtudeginum, æðislega gaman að hafa hana. Hún djammaði nú ekkert
með okkur þar sem hún er svo gjörn á að sofna yfir vidjó-inu En
það var alveg æðislegt að fá hana í heimsókn. Á laugardagsmorgninum
vaknaði ég við símann og á hinum endanum var Eva Sleggja mætt á
Akureyrarflugvöll og vantaði að láta ná í sig. Það var líka æði að
fá hana í heimsókn til að rifja upp gamla tíma. Takk öllsömul fyrir
komuna 
Og talandi um gamla tíma, þá var ég að gramsa í draslinu sem
mamma og pabbi komu með, drasli sem ég hef ekki séð í 4-5 ár, m.a.
það sem ég átti þegar ég bjó með sleggjunni og kústinum
(Unnur) í Goðabyggðinni sælla minninga. Við höfum verið iðular
við að semja ýmsar vísur okkur til gamans, og þá oftast um e-ð
ósiðlegt og bannað innan 16 ára! Ég var að lesa dagbækurnar
mínar síðan í Danmörku sumarið 2002 og interrail dagbókina sem og
Austurríkisdagbókina. Í leiðinni ákvað ég að losa mig við gamla
drauga úr fortíðinni. Betri Bára 2007 er farin í gang!!!
Nú eru breyttir tímar, ég er orðin 25 ára og er orðin KONA.
»
02.04.2007 15:22:15 / Sibba
Jæja, við erum orðin formlegir eigendur að Skólastíg 3 Það er
ekkert grín að flytja, ég er með strengi í rassinum og í höndunum
eftir að hafa borið sófa, stóla og borð upp þessar 10 tröppur sem
liggja upp að útidyrunum. Formið er alveg farið og ég reikna nú
ekki með því að bæta mikið útr því nú um páskana þar sem ég verð
ekkert að vinna og með gesti í heimsókn!
Við fengum afhent kl 3 á laugardaginn og gátum fyrst sest niður
kl 12 á miðnætti í nýja frábæra sófann og horft á nýja frábæra
sjónvarpið okkar. Íbúðin var frekar skítug og er ég ekkert smá
fegin að Stefanía á Húsavík hafi tekið að ég sér að þrífa
baðherbergið. Ég þreifa eldhúsið á meðan og svo settum við Stefanía
samana eldhúsborð og fjóra stóla. Strákarnir settu saman
sjónvarpsskenki og... já bara sjónvarpsskenkina og ég hjálpaði þeim
að setja saman sófaborðið. Neeee, þeir voru svaka duglegir, Rúmfó
passar sig alltaf á því að setja alls ekki allar skrúfur og nagla
sem þarf til að setja saman vörur frá þeim og kann ég strákanum
miklar þakkir fyrir þolinmæðina.
Ég fór svo útí bakarí í gærmorgun og keypti rúnstykki og ost og
skinku og fleira fyrir góðan brunch og fattaði svo þegar ég kom
heim að við áttum engan ostaskera Það eru líka engar gardínur
inn í eldhúsi né á baðinu... en það á eftir að týnast í búið smá
saman. Ég á allavega 6 diska til að geta boðið foreldrum mínum að
borða af um páskana 
Og enn á draslið eftir að hrúgast inn því mamma og pabbi erum að
koma um helgina með e-ð sem ég "gleymdi" í geymslunni....
Þessi lýsir ástandi flutningsdagsins best:
Hvað þarf marga karlmenn til að opna bjórdós?
Engan, dósin á að vera opin þegar konan kemur með hana.
Eða hvað...? Ég lagði alltent test fyrir Jón sem ég ætla að sjá
á miðvikudaginn hver staðan er á, muhahahahaha
»
30.03.2007 11:52:19 / Sibba
Vúbdídúúúúúúúúúú............... Á morgun fáum við íbúðina okkar
Mikið óskaplega hlakka ég mikið til að fara að skrúfa saman
stóla og borð og þrífa og raða 4 diskum, 6 skálum og 12 glösum í
eldhússkápana.
Það er svo innflutningspartý föstudaginn langa að
Skólastíg 3, efri hæð...
»
Síður: 1 2 3 ... 14
|
|